Um Ás smíði
Ás smíði var stofnað af Ármanni Þór Sigurvinssyni, byggingafræðingi BFÍ og húsasmiðameistara fyrir um 25 árum. Fyrirtækið sér um allt viðhald fasteigna, allt frá nýsmíði, innréttingasmíði, uppsteypu og sólpallasmíði, til alhliða viðhalds innanhúss og utan.
Ás smíði hefur frá upphafi sinnt fjölbreyttum verkum. Fyrirtækið hefur alltaf kappkostað að hafa fagmennsku og gæði að leiðarljósi. Þar hefur vaxið með árunum og aflað sér viðtækrar þekkingar og reynslu á sviði byggingariðnaðarins á Íslandi.
Ás smíði hefur á að skipa fagmönnum með mikla reynslu af nýsmíði og allskyns viðhaldi fasteigna. Við erum í samstarfi við fjölbreyttan hóp iðnaðarmanna sem við köllum til eftir þörfum, múrara, málara, pípulagningamenn, rafvirkja og blikksmiði.
Ármann er félagi í Byggingafræðingafélagi Íslands og Meistarafélagi Hafnarjarðar. Hann hefur starfað við nýsmíði og viðhald frá árinu 1991.
Gildin okkar
Fagmennska
Heiðarleiki
Samstarf


